
Jafnlaunastefna
iClean ehf. hefur innleitt jafnlaunakerfi sem nær til allra starfsmanna. Markmið jafnlaunakerfisins er að tryggja að stjórnendur fylgi ferlum sem tryggja launajafnrétti starfsmanna.
Jafnlaunastefnu iClean er ætlað að tryggja að við ákvörðun launa sé gætt fyllsta jafnréttis. Starfsmenn skulu njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismun eða aðra mismunun. Stjórnendur skuldbinda sig jafnframt til að viðhalda stöðugum úrbótum á sviði launajafnréttis, hafa eftirlit með viðmiðum og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem kunna að koma upp við rýni á ferlum launaákvarðanna.
Við ákvörðun starfskjara skal tryggt að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar þeirri ákvörðun feli ekki í sér kynjamismun. Það gildir jafnt um lífeyrisframlag, lengd orlofs eða veikindaréttar eða hvers konar annarra starfskjara sem hægt er að meta til fjár.
Jafnlaunastefna iClean er hluti af jafnréttisáætlun fyrirtækisins en tilgangur jafnréttisáætlunar er að tryggja að starfsmönnum sé ekki mismunað á nokkurn hátt svo sem vegna kyns, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, kynhneigðar, litarháttar, efnahags, ætternis, fötlunar, aldurs eða stöðu að öðru leyti. Jafnréttisáætlun er unnin í samræmi við lög nr.150/2020.
iClean hefur innleitt jafnlaunakerfi sem nær til allra starfsmanna fyrirtækisins. Markmið jafnlaunakerfisins er að tryggja að stjórnendur fylgi ferlum sem tryggja launajafnrétti starfsmanna iClean
